The Famous Grouse Open verður haldið á Korpúlfsstaðvelli laugardaginn 12. júní. Lykkjur mótsins verða Sjórinn/Áin. Ræst verður út frá kl. 08:00. Leikfyrirkomulag mótsins Betri bolti, tveir leikmenn mynda lið í punktakeppni. Hámarksforgjöf er gefin 24 hjá körlum og 28 hjá konum.
Skráning hefst mánudaginn 7. júní kl. 15:00 - þátttökugjald er kr. 5.600 á mann, innifalið í mótsgjaldi er hamborgari og bjór ásamt glaðningi á teig.
Til að hafa þátttökurétt þurfa keppendur að hafa náð 20 ára aldri.
Leiðbeiningar um skráningu:
Skráning í mótið fer fram í rástímaskráningu í Golfbox og er eingöngu hægt að bóka tvo leikmenn (eitt lið) í hvert holl. Valinn er völlurinn „GR – The Famous Grouse 2021 - betri bolti“ á dagsetningu mótsins 12.06.2021. ATH! Rástímarnir birtast á 5 mínútna fresti en þeir sem eru skráðir kl. 08:00 og 08:05 fara saman út o.s.frv. - ræst verður út á 9 mínútna fresti í mótinu. Daginn fyrir mót verður réttur rástímalisti sendur á keppendur.
Vinningaskrá:
1.sæti
- Glæsileg golf ferð til Vestmannaeyja fyrir tvo x2
Innifalið: Ferð með Herjólfi til og frá Vestmannaeyjum, gisting í eina nótt á Hótel Vestmannaeyjar með morgunverði og aðgangi að heilsulindinni, ásamt tveimur golfhring hjá Golfklúbbi Vestmannaeyjar. - Glæsilegur golf fatnaður frá Herrafataverzlun Kormáks & Skjaldar x2
- The Famouse Grouse 12 ára x2
- Muga Reserva magnum x2
2.sæti
- Gjafabréf fyrir tvo á Duck & Rose x2
- Gjafabréf - Örninn Golf x2
- The Famous Grouse 12 ára x2
- Muga Reserva x2
3.sæti
- Gjafabréf – Örninn Golf x2
- The Famous Grouse 12 ára x2
- Muga Reserva x2
Glæsileg verðlaun verða veitt fyrir besta golf búninginn – Kormákur frá Herrafataverzlun Kormáks & Skjaldar mun sjá um að velja vinningshafann.
- Gjafabréf fyrir tvo á Duck & Rose
- The Famous Grouse 12 ára
- Muga Reserva
Nándarverðlaun verða veitt á öllum par 3 brautum vallarins.
Vinningshafar mótsins verða birtir rafrænt eftir að móti lýkur á heimasíðu GR