Skrifað hefur verið undir vinavallasamning við Golfklúbb Hellu (GHR) fyrir golftímabilið 2018, samingurinn mun gilda frá 1. maí til 30. september og verður vallargjaldið kr. 2.500.
Þetta er sextánda árið í röð sem klúbbarnir gera með sér vinavallasamning og hafa félagsmenn GR verið duglegir að nýta sér það að spila á vellinum. Hjá Golfklúbbi Hellu er að finna allt það sem góðum klúbbi sæmir og kylfingur þarf – æfingasvæði og púttflöt auk glæsilegs klúbbhúss sem býður upp á fyrsta flokks veitingar fyrir eða eftir leik.
Sömu reglur gilda á Strandavelli og um aðra vinavelli, félagsmenn GR greiða kr. 2.500 fyrir leik á vellinum sama hvort leiknar eru 9 eða 18 holur. Áður en leikur hefst skulu félagar framvísa félagsskírteini í afgreiðslu og ganga frá greiðslu vallargjalds. Samkomulagið gildir ekki ef félagsmenn leika með hópum sem gert hafa sérstaka samninga um afslætti, sbr. fyrirtækjamót.
Golfklúbbur Reykjavíkur