Vinkvennamót GKG og GR fór fram dagana 16. júlí í Leirdalnum og 21. júlí í Grafarholti. Þátttakan var frábær 115 konur mættu til leiks í rigningunni 16. júlí og 109 konur mættu til leiks í sólinni þann 21. júlí.
Að móti loknu komu konur saman og gæddu sér á léttum hádegisverði Grafarholti oog áttu góða stund saman um leið og þær samglöddust vinningshöfum mótsins.
Mótið er punktakeppni með hámarksforgjöf 36 þar sem veitt eru verðlaun fyrir 1. – 3. sæti á punktum samanlagt og fyrir flesta punkta á hvorum velli, einnig eru veitt verðlaun fyrir besta skor í höggleik samanlagt og verðlaun veitt fyrir 55. sæti í punktakeppni.
Mælingar voru á öllum par 3 brautum vallanna.
Úrslit urðu sem hér segir:
- 1.sæti á punktum samanlagt – Dagný Erla Gunnarsdóttir GR á 75 punktum
- 2.sæti á puntkum samanlagt – Marólína G. Erlendsdóttir GR á 74 punktum
- 3.sæti á punktum samanlagt – Helga Guðjónsdóttir GR á 69 punktum
- 1.sæti á GKG á punktum – Hildur Íris Helgadóttir GR á 38 punktum
- 1.sæti á GR á punktum – Marólína G. Erlendsdóttir GR á 41 punkti
- 1.sæti í höggleik samanlagt – Ruth Einarsdóttir GR á 166 höggum
- 55.sæti – Hafdís Hafliðadóttir GR
Næstar holu hjá GKG:
2.braut – Ingveldur Björk Finnsdóttir GKG – 3,07 m
5.braut – Hafdís Hafliðadóttir GR – 0,75 m
9.braut – Ruth Einarsdóttir GR – 7,62 m
11.braut – Kristín Nielsen GR – 1,4 9m
13.braut – Margrét Björk Jóhannsdóttir GR – 2,75 m
17.braut – Birna B. Aspar GKG – 2,81 m
Næstar holu hjá GR:
2.braut – Sigurrós Birna Björnsdóttir GKG – 4 m
6.braut – Margrét Jamchi Ólafsdóttir GR – 2,49 m
11.braut – Helga Guðjónsdóttir GR – 4,49 m
17.braut – Dagný Erla Gunnarsdóttir GR – 3,63 m
Það er ljóst að GR konur eru sigursælar á þessu móti.
Við þökkum öllum sem tóku þátt kærlega fyrir samveruna og óskum verðlaunahöfum til hamingju - sjáumst hressar næsta sumar í vinkvennamóti.
Einnig þökkum við öllum þeim styrktaraðilum kærlega fyrir sem lögðu okkur lið og gáfu vinninga.
Kvennanefnd GKG
Kvennanefnd GR