Fyrsta bingó eldri kylfinga árið 2026 verður haldið fimmtudaginn 15. janúar.
Bingó er liður í vetrarstarfi eldri kylfinga klúbbsins, 65 ára og eldri og byrja margir daginn á því að pútta saman á efri hæð Korpunnar áður en bingó hefst í veitingasal kl. 10:00. ATH! Fyrsta bingóspjaldið kostar 1000 kr. hvert spjald umfram það kostar 500 kr.
Nú eru bingódagarnir á fimmtudögum.
Í hléi er boðið er uppá kaffi, kleinur og gos.
Bingódagar 2026 verður haldið þessa daga:
- 15. janúar 2026
- 12. febrúar 2026
- 12. mars 2026
Bingóspjaldið kostar kr. 500 og er tekið við greiðslum bæði með pening og korti.
Almennt er vel mætt á þennan mánaðarlega viðburð eldri kylfinga og eru flottir vinningar í boði. Við hvetjum þá félagsmenn, sem hafa náð 65 ára aldri, til að mæta og taka þátt í bingóviðburðum fram á vorið.
Golfklúbbur Reykjavíkur


