Fyrsta Bingó vetrarins hjá 65+ kylfingum er á fimmtudaginn 20. nóvember!

Við minnum á að fyrsta Bingó ársins hjá 65 ára og eldri kylfingum klúbbsins er á fimmtudaginn 20. nóvember kl. 10:00 í veitingasalnum á Korpu.
ATH! Fyrsta bingóspjaldið kostar 1000 kr. hvert spjald umfram það kostar 500 kr. Greiða má með seðlum og korti fyrir spjaldið/spjöldin.

Í hléi er boðið er uppá kaffi, kleinur og gos.

Bingó verður haldið þessa daga í vetur:

  • 20. nóvember 2025
  • 11. desember 2025
  • 15. janúar 2026
  • 12. febrúar 2026
  • 12. mars 2026

Almennt er vel mætt á þennan mánaðarlega viðburð eldri kylfinga og eru flottir vinningar í boði. Við hvetjum þá félagsmenn, sem hafa náð 65 ára aldri, til að mæta og taka þátt í bingóviðburðum í vetur. Golfklúbbur Reykjavíkur