Nefnd eldri kylfinga hjá Golfklúbbi Reykjavíkur hefur sett að stað mótaröð sem leikin er í golfhermi á Nítjándu í Bíldshöfða. Mótið er fyrir kylfinga í GR sem eru 70 ára eða eldri. Þetta er fyrsta keppnin sem haldin er með þessum hætti hjá þessum hópi.
Að þessu sinni verður eingöngu hægt að leika á Nítjándu, sem er stórglæsilegur staður í sama húsnæði og Örninn golf var en þetta er sama hús og Heilsugæslan Höfða og Mathöllin Höfða eru í.
Í janúar er leikin heimavöllur, Grafarholtið.
Í þessu fyrsta móti fá kylfingar eina tilraun en í hinum þremur mótunum fá kylfingar að spreyta sig tvisvar og betra skorið gildir. Í febrúar er leikinn Leirdalsvöllur GKG, í mars Jaðarsvöllur á Akureyri og lokamótið verður í Hvaleyrinni.
Karlar og konur leika af rauðum teigum, nema á heimvellinum Grafarholti, þar leika karlar af gulum teigum.
Skráningargjald í mótið er 3.000 kr. og síðan er mjög hóflegt gjald fyrir keppendur í mótið.
Til þess að skrá sig í golfhermamót GR 70 ára og eldri er hægt að nota þennan hlekk:
https://forms.gle/Qe5cwz5MDFMe9e258
eða þennan QR kóða

Bestu kveðjur,
Nefndin.


