Golfklúbbur Reykjavíkur boðar til fundar með golfbílaeigendum

Kæru félagar.

Í kjölfar tilkynninga stjórnar Golfklúbbs Reykjavíkur síðastliðið haust um breytingar á notkun golfbíla í eigu einstaklinga á völlum klúbbsins skapaðist umræða meðal klúbbmeðlima, ekki síst þeirra sem eiga golfbíla nú þegar. Klúbburinn leggur ríka áherslu á að eiga gott samtal við meðlimi og taka mið af sjónarmiðum þeirra sem málið varðar.

Golfklúbbur Reykjavíkur boðar í framhaldinu til fundar með eigendum golfbíla þar sem farið verður yfir stöðuna.

Fundurinn verður haldinn:

Miðvikudaginn 25. mars kl. 17:00 í matsal Golfklúbbs Reykjavíkur á Korpu.

Á fundinum verður meðal annars farið yfir:

  • forsendur ákvörðunar stjórnar um framtíðarfyrirkomulag golfbíla á völlum klúbbsins
  • stöðu og næstu skref í aðlögunarferlinu
  • mögulegar lausnir og samstarf við núverandi eigendur golfbíla
  • önnur atriði sem tengjast notkun golfbíla á völlum GR.

Markmið fundarins er að eiga opnar og uppbyggilegar umræður um málið og öll sjónarmið upp á borðið, áður en frekari ákvarðanir verða teknar.

Boðið verður upp á léttar veitingar á meðan á fundinum stendur.

Við hvetjum alla meðlimi sem eiga golfbíl til að mæta og taka þátt í umræðum.

Kær kveðja, stjórn Golfklúbbs Reykjavíkur