GSÍ mótaröðin hefst um helgina!

GSÍ mótaröðin hefst um helgina og hvetjum við félagsmenn að koma og hvetja okkar fólk – áfram GR!

 

Golfsumarið er hafið og samhliða því hefst GSÍ mótaröðin. Þar leika bestu kylfingar landsins í karla- og kvennaflokki um eftirsótta titla þar sem lokamótið, Íslandsmótið í höggleik, er hápunktur ársins.

Mótaröðin samanstendur af sex mótum sem dreifast yfir keppnistímabilið. Hvert mót er með sína sérstöðu og fá kylfingar stig fyrir árangur í hverju móti fyrir sig. Mótin hafa mismikið vægi, en Íslandsmótin tvö vega þyngst á stigalista GSÍ mótaraðarinnar. Vormótin telja til færri stiga en eru engu að síður mikilvægur hluti keppnissumarsins. Því næst taka við fjögur stærri mót:

  • Hvaleyrarbikarinn
  • Íslandsmótið í holukeppni
  • Korpubikarinn
  • Íslandsmótið í höggleik

Vormót

Vormótin tvö marka upphaf mótaraðarinnar. Leikfyrirkomulag Vormótanna er breytt punktakeppni, sem gefur kylfingum hvata til að spila sóknargolf. Leikfyrirkomulagið þekkist til að mynda í Barracuda mótinu á PGA mótaröðinni.

Hvaleyrarbikarinn og Korpubikarinn

Hvaleyrarbikarinn og Korpubikarinn eru öflug og virðuleg mót sem hafa verið hluti af GSÍ mótaröðinni um árabil. Mótin fara ávallt fram á Hvaleyrarvelli og Korpúlfsstaðavelli. Leikfyrirkomulagið er 54 holu höggleikur og gilda mótin á heimslista áhugamanna (WAGR).

Íslandsmótið í holukeppni

Íslandsmótið í holukeppni hefst á 36 holu höggleik. Í framhaldinu leika 16 efstu kylfingarnir holukeppni með útsláttarfyrirkomulagi þar til einn stendur eftir sem Íslandsmeistari í holukeppni. Konur leika á Urriðavelli 13.-15. júní og karlar á Hlíðavelli 21.-23. júní.

Íslandsmótið í golfi 

Íslandsmótið í golfi er hápunktur sumarsins og lokamót GSÍ mótaraðarinnar. Leikfyrirkomulag er 72 holu höggleikur þar sem sigurvegari hlýtur titilinn Íslandsmeistari í golfi. Auk þess er stigameistari GSÍ mótaraðarinnar krýndur. Mótið fer fram á Hvaleyrarvelli og verður í beinni útsendingu á RÚV.

Stigalisti GSÍ mótaraðarinnar

Mótaröðin samanstendur af sex mótum sem dreifast yfir keppnistímabilið. Hvert mót er með sína sérstöðu og fá kylfingar stig fyrir árangur í hverju móti fyrir sig. Mótin hafa mismikið vægi, en Íslandsmótin tvö vega þyngst á stigalista GSÍ mótaraðarinnar.

 

Hér fyrir neðan má sjá dagsetningar GSÍ mótaraðarinnar árið 2025

Dags. Mán. Mótaskrá 2025 Klúbbur Flokkur.
17-18 Maí Vormót* GM GSÍmótaröðin
24-25 Maí Vormót* GSÍmótaröðin
30-1 Júní Hvaleyrarbikarinn – GSÍ mótaröðin GK GSÍmótaröðin
13-15 Júní Íslandsmót í holukeppni kvenna – GSÍ mótaröðin GO GSÍmótaröðin
21-23 Júní Íslandsmót í holukeppni karla – GSÍ mótaröðin GM GSÍmótaröðin
18-20 Júlí Korpubikarinn – GSÍ mótaröðin GR GSÍmótaröðin
7-10 Ágúst Íslandsmótið í golfi – GSÍ mótaröðin GK GSÍmótaröðin