Haraldur Franklín lauk leik í öðru sæti – 60 högg á lokahringnum á Dormy Open
Mynd/ HotelPlannerTour

Íslenski atvinnukylfingurinn Haraldur Franklín Magnús endaði annar á Dormy Open mótinu sem fram fór á Upsala Golf Club vellinum í Svíþjóð dagana 28.-31. ágúst.

Haraldur Franklín lék lokahringinn á 60 höggum eða 11 höggum undir pari vallarins. Með þessum glæsilega lokahring setti Haraldur Franklín vallarmet sem fyrir var 61 högg í eigu Ludvig Aberg PGA atvinnukylfings. Haraldur Franklín lauk leik á samtals 23 höggum undir pari sem er besta skor Íslendings á atvinnumannamóti fyrr og síðar.

Hér má skoða úrslit mótsins

Mótið er hluti af HotelPlanner Tour atvinnumótaröðinni sem er sú næst sterkasta í Evrópu.

Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR, Haraldur Franklín Magnús, GR, Nick Carlson, GM, og Sigurður Arnar Garðarsson, GKG, voru allir á meðal keppenda.

Haraldur var jafn í fimmta sæti eftir öflugan fyrsta hring. Þar fékk hann átta fugla og einn skolla.

Fuglunum rigndi inn alla helgina og var hann skammt á eftir efstu mönnum, rétt fyrir utan efstu tíu sætin, fyrir lokahringinn. Þegar allt var undir sýndi Haraldur sýnar bestu hliðar. Hann fékk ellefu fugla og sjö pör á lokahringnum, og lék hann því ellefu undir pari vallarins. Þetta reyndist besti hringur mótsins. Minnstu mátti muna að Haraldur hefði leikið undir 60 höggum, en fuglapútt hans á átjándu endaði á brún holunnar.

Fuglaveisla

Með árangrinum tekur Haraldur stórt stökk á stigalista mótaraðarinnar og fer úr 156. sætinu upp í það 70.

Munurinn er mikill fyrir okkar mann, en efstu 77 kylfingar stigalistans í lok tímabils geta tekið þátt í langflestum mótum mótaraðarinnar á næsta ári. Einnig vann Haraldur sér inn þátttökurétt í GAC Rosa Challenge Tour mótinu í Póllandi í næstu viku. Hann vann sér inn þann rétt með því að enda í einu af tíu efstu sætum mótsins.

Guðmundur Ágúst Kristjánsson lék flott golf í mótinu og endaði jafn í 54. sæti á sjö höggum undir pari. Þetta er besti árangur hans á tímabilinu, en hann situr í 227. sæti stigalistans.

Hringir Gumma

Við óskum Haraldi Franklín innilega til hamingju með þennan truflaða lokahring og árangurinn í mótinu.
Við GR-ingar erum afar stolt af báðum okkar kylfingum – Áfram GR!