Fyrstu tveir hringirnir
Haraldur lék gott golf á fyrsta hring og kom í hús á þremur höggum undir pari. Hann hóf leik á 10. holu og var á pari vallarins þegar þrjár holur voru eftir. Frábær fugl á sjöundu holunni og örn á þeirri áttundu komu okkar manni í mikið betri mál, en hann endaði daginn jafn í 22. sæti.

Annan hringinn lék Haraldur á pari vallarins. Hann fékk fimm fugla, þrjá skolla og einn tvöfaldan skolla. Eftir hringinn er Haraldur jafn í 55. sætinu á þremur undir pari og náði í gegnum niðurskurð.
Hægt er að fylgjast með skori mótsins hér
Fyrir mótið var Haraldur í 62. sæti listans, en efstu 45 kylfingarnir að móti loknu fá þátttökurétt í lokamóti mótaraðarinnar. Haraldur verður því að vera á meðal efstu manna til að ná inn í lokamótið. Hann hefur þó leikið vel á tímabilinu, en margir af þeim kylfingum sem hafa safnað jafn mörgum stigum og Haraldur hafa leikið í tvöfalt fleiri mótum.
Hangzhou Open mótið er leikið á Hangzhou West Lake Golf Club golfvellinum í Hangzhou, Kína. Völlurinn var hannaður af Jack Nicklaus og gefur kylfingum frábæra blöndu af gróðri og vatni.


