Hjóna- og parakeppni GR – skráning hefst föstudaginn 6. júní kl.13:00

Hjóna- og parakeppni Golfklúbbs Reykjavíkur verður haldin í Grafarholti þriðjudaginn 17. júní. Mótið er innanfélagsmót. Keppnisfyrirkomulag er Greensome þar sem tvö leika saman í liði. Til að mynda liðsforgjöf fær liðið 40% af leikforgjöf hærri leikmans og 60% af lægri leikforgjöf. Hámarksforgjöf karla er 24 og hjá konum 28.

Ræst er út samtímis af öllum teigum kl. 08:00, mæting kl. 07:00.

Glæsileg verðlaun verða veitt fyrir 3 efstu sætin auk nándarverðlauna á öllum par 3 holum vallarins.

Skráning í mótið hefst í mótaskrá Golfbox föstudaginn 6. júní, kl. 13:00

Mótsgjald er kr. 8.250 á mann og greiðist hjá veitingasala þegar mætt er til leiks. Innifalið í mótsgjaldi eru veitingar að móti loknu og verður boðið upp á:

Forréttur

  • Heitreykt bleikja með steinseljurótarmauki, skyr-gúrkusósu, og ristuðu súrdeigsbrauði.

Aðalréttur

  • Heilsteikt nautalund með koniaks-piparsósu, bátakartöflum, ristuðu grænmeti og maís.

Eftirréttur 

  • Sætir bitar + kaffi

Pylsu partý!!!
Boðið upp á pylsur á 1. og 10. teig á meðan á leik stendur.

Hæ hó jibbí jei, það styttist í Hjóna- og para!
Golfklúbbur Reykjavíkur