Jussi Pitkänen ráðinn sem faglegur ráðgjafi fyrir barna-, unglinga- og afreksstarf GR

Golfklúbbur Reykjavíkur hefur gert tveggja ára samning við Jussi Pitkänen um faglega ráðgjöf á sviði barna-, unglinga- og afreksstarfs klúbbsins. Jussi er menntaður PGA-golfkennari og hefur áratuga reynslu af þjálfun og stjórnun afreksstarfs í golfi, bæði á Íslandi og á alþjóðavettvangi.

Jussi er Íslendingum að góðu kunnur eftir að hafa gegnt starfi afreksstjóra Golfsambands Íslands (GSÍ) á árunum 2016–2018 og síðar starfi landsliðsþjálfara hjá finnska golfsambandinu. Að auki hefur hann starfað fyrir bresku PGA-samtökin og Dave Pelz golfakademíuna á Írlandi. Við teljum að víðtæk reynsla og sérþekking sem hann býr yfir muni nýtast GR afar vel.

Jussi er búsettur á Spáni og verður það áfram. Athugast að um ráðgjöf er að ræða en ekki að hann komi inn sem starfsmaður.  Hlutverk hans hjá GR verður meðal annars að koma að skipulagningu starfsins, móta íþrótta- og afreksstefnu. Styðja við þjálfara og leikmenn með reglulegum heimsóknum ásamt því að lyfta íþrótta- og afreksstefnu klúbbsins á hærra stig.

Við trúum því að innkoma Jussi muni styrkja íþrótta- og afeksstarf GR enn frekar og koma með nýja hluti og sjónarmið að borðinu.  Við bjóðum Jussi hjartanlega velkominn til starfa.