Íslandsmót golfklúbba – karlalið GR lék á Leirdalsvelli hjá GKG.
Íslandsmót golfklúbba í 1. deild karla fór fram á Leirdalsvelli Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar dagana 24.-26. júlí 2025.
Heimalið GKG mætti GR í úrslitum mótsins. Bæði lið léku frábært golf í mótinu, en GR stóð uppi sem sigurvegari eftir 3-2 sigur í úrslitum.
Þetta er í 26. skipti sem GR sigrar í efstu deild Íslandsmóts golfklúbba.
Alls kepptu átta lið um Íslandsmeistaratitil golfklúbba 2025.
Í B-riðli var hart barist um sæti í undanúrslitum. Golfklúbbur Reykjavíkur vann alla sína leiki í spennandi viðureignum.
GR sigraði GA í seinni undanúrslitaleiknum, 3.5-1.5

Úrslit:
Sveitir GKG og GR mættust í úrslitaleiknum. Leikurinn spilaðist jafn frá upphafi, og stefndi í að fyrri fjórmennings leikurinn myndi skera úr um sigurvegara mótsins. Þar léku Dagbjartur Sigurbrandsson og Jóhann Frank Halldórsson saman fyrir sveit GR og Róbert Leó Arnórsson og Kristófer Orri Þórðarson fyrir GKG. Dagbjartur og Jóhann leiddu með tveimur þegar fjórar voru eftir. Kristófer og Róbert náðu að minnka muninn, en það reyndist ekki nóg. GR sigraði leikinn 1/0, og einvígið í heild sinni 3-2. GR eru því Íslandsmeistarar golfklúbba!
Golfklúbbur Reykjavíkur hefur sigrað oftast eða 26 sinnum.

Íslandsmót golfklúbba – kvennalið GR lék á Jaðarsvelli á Akureyri
Úrslitin réðust á Jaðarsvelli á Akureyri í gær, en andstæðingurinn í úrslitum mótsins var Golfklúbbur Reykjavíkur.
Alls tóku átta lið þátt í 1. deild kvenna í keppninni um Íslandsmeistaratitil golfklúbba 2025.
Fyrst var leikið á Íslandsmóti golfklúbba í kvennaflokki árið 1982. Mótið í ár er það 42. í röðinni. Frá árinu 1982 hafa 4 klúbbar fagnað þessum titli.
Hart var barist um efsta sætið í B-riðli. Eftir sigra í fyrstu tveimur leikjum sínum mættust sveitir GR og GK í hreinum úrslitaleik um efsta sæti riðilsins. Leikurinn var í járnum allan tímann. Elsa Maren Steinarsdóttir setti flott pútt í á 18. holunni, og tryggði GR með því jafntefli í leiknum. Það reyndist nóg, þar sem sveit GR fékk hálfan vinning meira en GK í hinum tveimur leikjum riðilsins.
Golfklúbbur Reykjavíkur sigraði Golfklúbb Mosfellsbæjar 4-1 í seinni undanúrslitaleiknum. Fjórir af fimm leikjum viðureignarinnar enduðu á átjándu holunni, en flestir þó GR í vil.

Úrslit:
Úrslitaleikurinn var í járnum frá upphafi. Þegar tólf holur voru liðnar voru tveir leikir jafnir, GK upp í tveimur og GR upp í einum.
Staðan breyttist lítillega á síðustu holunum. Keilir sigraði tvo leiki og GR einn, en tveir leikir enduðu í bráðabana. Guðrún Birna(GK) og Valdís Þóra(GR) voru jafnar eftir átján holur, sem og Elsa Maren(GR) og Guðrún Brá(GK).

Elsa fékk fugl á 19. holunni og sigraði leikinn, og öll augu því á leik Valdísar Þóru og Guðrúnar Birnu. Eftir pör á 19. og 20. holunum var það loks á 21. holunni sem hægt var að skilja þær að. Teighögg Valdísar endaði í vítasvæðinu og par Guðrúnar tryggði Íslandsmeistaratitilinn.
Golfklúbbur Reykjavíkur hefur oftast sigrað eða 22 sinnum.

Við erum ótrúlega stolt af báðum liðum og óskum þeim innilega til hamingju með árangurinn.
Áfram GR!


