Ólafur Björn Loftsson, afreksstjóri Golfsambands Íslands, hefur valið landsliðin sem taka þátt á Evrópumótum kvenna, karla, stúlkna og pilta. Evrópumót kvenna fer fram í Frakklandi og karlaliðið leikur á Írlandi. Stúlknalandsliðið leikur í Englandi og piltalandsliðið í Ungverjalandi.
Öll mótin fara fram á sama tíma eða dagana 8.-12. júlí.
Kvenna-, karla- og stúlknalandsliðin leika í efstu deild en piltalandsliðið leikur í 2. deild.
Golfklúbbur Reykjavíkur á fulltrúa í kvennaliðinu sem keppir í Frakklandi
Evrópumót kvenna í Frakklandi
Andrea Ýr Ásmundsdóttir, GA
Elsa Maren Steinarsdóttir, GR
Eva Kristinsdóttir, GM
Heiðrún Anna Hlynsdóttir, GOS
Hulda Clara Gestsdóttir, GKG
Perla Sól Sigurbrandsdóttir, GKG
Þjálfari: Þorsteinn Hallgrímsson
Sjúkraþjálfari: Árný Lilja Árnadóttir
Golfklúbur Reykjavíkur á þrjá fulltrúa í karlaliðinu sem keppir á Írlandi
Evrópumót karla á Írlandi
Böðvar Bragi Pálsson, GR
Dagbjartur Sigurbrandsson, GR
Gunnlaugur Árni Sveinsson, GKG
Logi Sigurðsson, GS
Tómas Eiríksson Hjaltested, GR
Veigar Heiðarsson, GA
Þjálfari: Ólafur Björn Loftsson
Sjúkraþjálfari: Baldur Gunnbjörnsson
Golfklúbbur Reykjavíkur á einn fulltrúa sem valin var til að spila á European Young Masters í Frakklandi
European Young Masters í Frakklandi 24.-26. júlí
Arnar Daði Svavarsson, GKG
Ásdís Rafnar Steingrímsdóttir, GR
Bryndís Eva Ágústsdóttir, GA
Máni Freyr Vigfússon, GK
Við erum ótrúlega stolt af okkar flottu kylfingum sem fá þann heiður að keppa fyrir hönd Íslands!
Áfram GR – áfram Ísland