Laugardaginn 4. apríl ætlum við að efna til skemmtilegs liða púttmóts fyrir GR félaga.
Mótið er frá 14:00-17:00 – 2 saman í liði. Spilaðir 2 hringir og betri hringur hvors liðsfélaga gildir inn í liðsskorið. Veitt eru verðlaun fyrir 1.-3. sæti og einnig dregið úr skorkortum.
Hvetjum alla GR félaga til að mæta og hafa gaman.
Mótsgjaldið er 3.000 kr á lið og innifalið í því er vaffla og kaffi eftir hring. Posi á staðnum.
Tilvalið fyrir golfhópa að hittast fyrir sumarið, pútta og spjalla.
Hlökkum til að sjá sem flesta – skráning fer fram hér Skráning í liðakeppni


