Lokahóf ECCO púttmótaraðarinnar 2026 ! – skráning nauðsynleg

Nú er nú komið að því að loka saman fyrsta og fjölmennasta móti ársins á vegum kvennanefndar GR!

Við ætlum að hittast þriðjudaginn 3. mars í Korpunni og fagna þessari skemmtilegu mótaröð með frábærri stemningu og spennandi úrslitapútti topp 10 kvenna.

Húsið opnar kl. 17:00
Boðið verður upp á að kaupa léttvín, bjór og óáfenga drykki

Skráning er nauðsynleg – og hún LOKAR á sunnudaginn 1. mars kl. 16:00.

Skráning fer fram hér:  Skráning

Drög að dagskrá:

17:00 – Salurinn opnar

18:00 – 10 efstu konur pútta um úrslitin

18:30 – Léttar veitingar frá Nomy veitingar

19:00 – Úrslit kynnt og verðlaun veitt

19:15 – Lukkupútt – muna að taka með pútter en verðum einnig með til láns ef einhver gleymir

Ekki verður heimilt að mæta snemma og taka frá borð og sæti. Húsrúm er takmarkað og við þurfum að gera það besta úr aðstæðum.