Meistaramótið – þetta orð kveikir strax gleði. Enda er þetta fyrir marga skemmtilegasta vika ársins! Golf, gleði, félagsskapur og mögulega dass af keppnisskapi.
Vikan þar sem Grafarholtið og Korpan breytast í sannkallaðan leikvöll þar sem allar kynslóðir mæta með bros á vör og kylfur í hönd.
Meistaramót Golfklúbbs Reykjavíkur 2026 fer fram dagana 5.–11. júlí, svo það er um að gera að setja dagsetninguna strax í dagatalið.
Nánari upplýsingar verða birtar þegar nær dregur. Einnig er hægt að fylgjast með á heimasíðunni okkar undir Golf – Meistaramót eða á slóðinni: Meistaramót – GR Golf.

