N1 Unglingamótið og Golf14 í samstarfi við N1

Í gær lauk keppnistímabili barna- og unglinga þegar N1 Unglingamótið og Golf14 í samstarfi við N1 var leikið á öllum lykkjum Korpunnar. Það var met skráning í mótin og sérstaklega gaman hversu margir keppendur voru skráðir í Golf14 mótið en það voru 130 keppendur skráðir til leiks í flokkum 14 ára og yngri. Það var gaman að sjá hve margir skráðu sig til leiks og kepptu fyrir klúbbinn á heimavellinum, þjálfarateymi klúbbsins er virkilega stolt af hópnum.

 

Flokkur 12 ára og yngri – árangur GR

Í flokki 12 ára og yngri drengir varð GR-ingurinn Pétur Franklín Atlason í 1. sæti eftir að hafa spilað seinni hringinn á pari Landsins. Magnús Torfi Sigurðsson varð í 5.sæti, Ísak Hrafn Jónasson endaði í 6. sæti og Tómas Númi Sigurbjörnsson var jafn í 8. sæti mótsins. Golfklúbbur Reykjavíkur átti 18 keppnendur í þessum flokk og gaman að sjá hversu margir hafi skráð sig til leiks á heimavelli.

Flokkur 14 ára og yngri – árangur GR

Í flokki 14 ára og yngri stúlkur endaði Hrafnhildur Sigurðardóttir í 8. sæti og Ásta Rebekka Þorsteinsdóttir í því 9. Í flokki 14 ára og yngri piltar endaði Ingimar Jónasson í 6. sæti.

Flokkur 15-18 ára – árangur GR

Í flokki 15-16 ára stúlkur var það Ásdís Rafnar Steingrímsdóttir sem endaði jöfn í 3. sæti, Margrét Jóna Eysteinsdóttir lauk leik jöfn í 7. sæti og Erna Steina Eysteinsdóttir jöfn í því 10. Í flokki 15-16 ára drengir hafnaði Birgir Steinn Ottósson jafn í 3. sæti.

Í flokki 17-18 ára stúlkur endaði Þóra Sigríður Sveinsdóttir í 4. sæti og í piltaflokki lauk Gunnar Þórður Jónasson leik, einnig í 4. sæti og Sigurður Helgi Hlöðversson í 8. sæti.

Öll úrslit út mótunum hafa verið birt á vef GSÍ – golf.is

Takk fyrir frábært tímabil – Áfram GR!