Nýjar reglur um golfbíla taka gildi í lok sumars 2026

Nýjar reglur um golfbíla taka gildi í lok sumars 2026 🛺

Golfklúbbur Reykjavíkur hefur ákveðið að frá og með opnun golfvalla GR vorið 2027 verði notkun golfbíla í eigu einstaklinga ekki lengur heimiluð á völlum klúbbsins. Klúbburinn bíður nú þegar upp á golfbíla til leigu gegn hóflegu gjaldi og verður leitast við að uppfylla þarfir kylfinga með þeim hætti. 🛺

Fyrir þessu eru ýmsar ástæður, m.a. spurningar um pláss, bílastæði, umhverfisleg rök og síðast en ekki síst stjórnun og aðgangsstýring, m.a. til verndar svæðum nærri teigum, flötum og svæðum sem á hverjum tíma þarfnast sérstakrar verndunar.

Við vonumst til að félagsmenn sýni þessari breytingu skilning. Hún er liður í því að verja völlinn okkar til framtíðar og bæta upplifun allra kylfinga – bæði í dag og á komandi árum. ⛳️

Stjórn Golfklúbbs Reykjavíkur