Nýtt skipurit og ráðning forstöðumanns vallarsviðs GR

GR hefur innleitt nýtt skipurit, þar sem starfsemi klúbbsins er deilt niður á sex svið (sjá á myndinni hér fyrir neðan).  Tilgangur með innleiðingu skipuritsins er að bregðast við umfangsmeiri rekstri, skerpa á ábyrgð hvers sviðs og auka skilvirkni.  Yfir hverju sviði er forstöðumaður, sem ber ábyrgð á því, undir framkvæmdastjóra.

Samhliða þessari breytingu hefur GR ráðið nýjan starfsmann í stöðu forstöðumanns vallarsviðs, Styrmi Guðmundsson.

Styrmir er fæddur 1975, er með menntun í markaðhagfræði frá Copenhagen Business School í Danmörku og viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands. Áður en hann hóf viðskiptafræðinámið lærði hann golfvallarumsjón (National Certificate in Greenkeeping) við Elmwood College í Skotlandi, líkt og margir vallarstjórar hér á landi. Síðastliðin 20 ár hefur hann starfað hjá fyrirtækjum í fjármálageiranum. Áður vann hann sem vallarstarfsmaður hjá Nesklúbbnum og Golfklúbbi Sandgerðis. Á síðasta ári starfaði hann hjá Ferndown Golf Club á Englandi, þar sem hann var meðlimur, en Styrmir er reyndur og góður kylfingur. Hann er með mjög mikla rekstrar- og stjórnunarreynslu, þekkingu á umhirðu og rekstri golfvalla ásamt alhliða þekkingu á íþróttinni.

Ráðning Styrmis sem forstöðumanns vallarsviðs GR er hrein viðbót við starfsliðið sem sinnir golfsvæðum GR. Rekstur GR hefur vaxið verulega á undanförnum árum.  Samhliða hefur klúbburinn staðið í umfangsmiklum framkvæmdum og innviðafjárfestingum. Verkefnin hafa orðið fleiri og umfangsmeiri og er sinnt allt árið um kring. Vallarsviðið er umfangsmikið, þegar horft er til rekstrartalna, fjölda starfsmanna, framkvæmda og fjárfestinga. Að þessu öllu athuguðu var það mat stjórnar að tímabært væri að ráða inn nýjan stjórnanda yfir þessu sviði.

Við væntum mikils af Styrmi og bjóðum hann velkominn til starfa fyrir GR.

Stjórn GR