Páskaopnun og púttmót á Korpu

Fyrir þá kylfinga sem ætla að nota páskana til að skerpa á sveiflunni fyrir komandi golfsumar er gott að hafa opnunartíma yfir páskana á hreinu:

Opnun yfir páskana

  • Inniæfingaaðstaða á Korpu

Opið alla páskana frá kl. 08:00–22:00.

Þar er tilvalið að æfa stutta spilið, vippa og pútta.

  • Thorsvöllur

Thorsvöllurinn er alltaf opinn fyrir félagsmenn og tilvalinn til að komast út á gras, sjá boltann fljúga og fylgja eftir með því að pútta í holuna – og fá þannig tilfinninguna fyrir sumrinu.

Púttmót á Korpu – laugardagur 4. apríl

Við bjóðum upp á skemmtilega liðakeppni, kaffi og vöfflu og frábæra stemningu fyrir alla GR-félaga og fjölskyldur.

Upplýsingar um mótið

2 í liði

Mótsgjald: 3.000 kr. á lið – kaffi og vöffla innifalið

Leiknir verða 2 hringir – betri hringur hvors leikmanns gildir í liðsskor

Skráning fer fram í gegnum hlekkinn

POSI á staðnum – einnig hægt að mæta og skrá sig á staðnum

Fjölskyldustund kl. 12:00–14:00

Börn eru hjartanlega velkomin í fylgd með fullorðnum. Tilvalið fyrir ömmur, afa og foreldra að koma með litlu kylfingana.

Börn 12 ára og yngri geta snúið lukkuhjóli og unnið skemmtilega vinninga.

Púttkeppni fyrir félagsmenn kl. 14:00–17:00

Skemmtileg liðakeppni fyrir alla GR-félaga. Verðlaun í boði fyrir þrjú efstu liðin.

Skráning hér

Opnunartími Bása yfir páskana

  • Skírdagur: 8:00–22:00
  • Föstudagurinn langi: 8:00–18:00
  • Laugardagur: 10:00–18:00
  • Páskadagur: 10:00–20:00
  • Annar í páskum: 8:00–22:00

Við óskum félagsmönnum okkar gleðilegra páska og vonum að þið njótið þeirra vel.