Ágætu félagsmenn,
Eins og fram hefur komið í fréttum frá okkur undanfarnar vikur er verið að setja upp nýja salernisaðstöðu bæði í Grafarholti og á Korpu.
Búið er að virkja salernisaðstöðu við 6. teig í Grafarholti og við 14. og 23. braut á Korpu.
Næst verður komið fyrir nýrri salernisaðstöðu við 6. braut á Sjónum á Korpu. Því verður salernisaðstaðan þar lokuð frá og með föstudeginum 22. ágúst á meðan framkvæmdir standa yfir. Stefnt er að því að ný aðstaða verði opnuð í næstu viku.
Golfklúbbur Reykjavíkur biður félagsmenn velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.
Golfklúbbur Reykjavíkur


