September nálgast – opnunartímar breytast

September nálgast óðfluga, daginn farið að stytta og haustrútínan að hefjast hjá skólafólkinu okkar. Það þýðir líka eitt, golftímbilið er farið að styttast í annan endan og við breytum opnunartíma golfverslana.

Opnunartími golfverslana er núna sem hér segir frá kl. 08:00-19:00 virka daga og frá kl. 08:00-18:00 um helgar.

Opnunartími golfverslana verður frá og með 1. september virka daga frá kl. 09:00-18:00 og um helgar 08:00-18:00.

 

Korpa verður 3x 9 holur frá og með 8. september

Skráningum á Korpunni veðrur breytt í 3x 9 holu lykkur frá og með mánudeginum 8. september. Þeir félagsmenn sem hafa áhuga á að leika 18 holur þurfa þá að skrá sig aftur í rástíma á seinni 9.

Skrifstofa klúbbsins er opin alla virka daga frá kl. 09:00-16:00 og geta félagsmenn alltaf leitað þangað ef eitthvað er.

 

Klúbbhús veitingahús lokar nú kl. 22:30 og eldhúsinu lokar klukkutíma fyrr eða kl. 21:30.

 

Golfklúbbur Reykjavíkur