Vetrargolfið hefur verið iðkað af krafti hjá nokkrum vaskum félögum sem hafa nýtt hvert tækifæri þegar veður leyfir. Yfir vetrartímann hafa þeir helst spilað í Þorlákshöfn eða á völlum sem bjóða upp á sumarflatir og fulla lengd – og Sandgerði reyndist engin undantekning.
Þriðjudagsmorguninn 25. nóvember hringdi Jónas Kristjánsson í Einar Long og bauð í skyndihugmynd: að renna suður í Sandgerði ásamt Guðmundi Vigfússyni, jafnan kallaður Donna, og kanna hvort hægt væri að spila. Mæting var ákveðin klukkan 12:00 og héldu þeir félagar suður eftir í þokkalegu vetrarveðri, um +3 gráður og um 4 m/s vind. Á þessum árstíma snýst golfið fyrst og fremst um hreyfingu og góðan félagsskap. Völlurinn í Sandgerði kom hins vegar skemmtilega á óvart – mjúkur og í ótrúlega góðu standi, flatir merkilega góðar og lengd vallarins eðlileg miðað við árstíma.
Jónas hóf leik af krafti með fugli á annarri holu en Donni og Einar pöruðu fyrstu tvær holurnar. Á þriðju holu hjá Einari kom skolli eftir misheppnað þriðja högg og útlitið var ekki sérlega bjart. Höggin voru þó góð og púttin heit. Fljótlega fór að lifna yfir spilamennskunni – tveir fuglar bættust við og eftir níu holur var staðan komin í -1.
Einar paraði síðan 10. og 11. holu en eftir það hófst sannkölluð fuglaveisla; sex fuglar á síðustu sjö holunum. Á 18. holu átti hann 2,5 metra pútt fyrir erni sem rétt missti marks, en lokaskorið var engu að síður glæsilegt – 65 högg, eða -7.
Með því afreki náði Einar Long í fyrsta sinn að spila undir aldri, 67 ára gamall. Það hafði verið markmið frá 65 ára aldri að ná þessum áfanga. Á yngri árum hafði hann leikið á því skori og talið það raunhæfan möguleika – og því sérstaklega ánægjulegt að ná markmiðinu svona snemma.

Dagurinn var, að eigin sögn, yndislegur með frábærum félögum.
Og árið endaði ekki síður vel. Þann 30. desember spiluðu þeir félagar ásamt Karli Vídalín Grétarssyni í Þorlákshöfn. Þar fór Einar Long holu í höggi og lék hringinn á 68 höggum (-4), aðeins einu höggi frá því að leika aftur á aldri.
Golfárið endaði því með glæsibrag – í góðum félagsskap GR-vina og með eftirminnilegum afrekum á vellinum.

