Framkvæmdir við uppbyggingu Thorsvallar á Korpu eru nú hafnar og markar það mikilvægt skref í áframhaldandi þróun vallarsvæðisins eins og áður hefur verið kynnt. Unnið verður markvisst að endurbótum á vellinum á næstu misserum með það að markmiði að bæta leikskilyrði og upplifun kylfinga.
Á þessu ári verður sérstök áhersla lögð á að slétta 3. og 6. braut. Sú vinna er liður í heildarendurbótum vallarins og mun skila sér í betra yfirborði og auknum gæðum til lengri tíma.
Til bráðabirgða ætlum við að breyta vellinum til að geta haldið áfram að leika 9 holur meðan á framkvæmdunum stendur. Þriðja brautin verður leikin inn á 6. flötina og teigurinn aftan við 2. flötina. Fjórða brautin verður leikin af 6. teignum inn á 3ju flötina. Þessar brautir munu þjóna kylfingum á meðan framkvæmdir standa yfir og tryggja að hægt sé að nýta völlinn áfram á uppbyggingartímanum.

Jafnframt verður nýr fyrsti teigur opnaður í byrjun sumars. Þar hefur verið farið í spennandi nýjung þar sem svokallað hybridgras hefur verið lagt til prufu. Markmiðið með þeirri tilraun er að kanna hvort sú lausn geti styrkt uppbyggingu teiga og aukið endingu þeirra við íslenskar aðstæður.
Við viljum minna félagsmenn okkar á að Thorsvöllur er eingöngu opinn félagsmönnum Golfklúbbs Reykjavíkur. Skráning í rástíma fer fram í gegnum Golfbox, eins og áður.
Að lokum hvetjum við alla félagsmenn til að sýna vellinum góða umgengni á meðan framkvæmdir standa yfir. Með samstilltu átaki tryggjum við að Thorsvöllur verði áfram eftirsóknarverður og glæsilegur golfvöllur til framtíðar.
Golfvallarsvið


