Kæru félagar,
Fyrr í vikunni tilkynnti stjórn GR að frá og með opnun golfvalla GR vorið 2027 verði notkun golfbíla í eigu einstaklinga ekki heimiluð á völlum klúbbsins.
Í tilkynningunni kom fram að fyrir ákvörðuninni séu ýmsar ástæður, m.a. spurningar um pláss, bílastæði, umhverfisleg rök og síðast en ekki síst stjórnun og aðgangsstýring á völlunum. Allt eru þetta að mati stjórnar góð og gild rök og óumflýjanlegt að bregðast við. Því lengur sem það er dregið, því erfiðari verði ákvörðunin.
Tilkynningin hefur vakið viðbrögð og þá sérstaklega meðal félagsmanna sem eiga golfbíla nú þegar. Klúbburinn vill að sjálfsögðu vinna með félagsmönnum. Að þessu öllu athuguðu hefur GR ákveðið að lengja fyrirvarann til vorsins 2028 í stað 2027.
Því til viðbótar vill klúbburinn taka upp samtal við núverandi bílaeigendur um að koma til móts við þá, með tilliti til hagsmuna beggja. Meðal þess sem klúbburinn vill athuga er möguleiki á að koma upp stjórnbúnaði í einkabílunum, bílar standist skoðun og eigendur beri kostnað er því fylgir. Eigendur eru beðnir um að gefa sig nú þegar fram við skrifstofu klúbbsins með tölvupósti (gr@grgolf.is), þannig að náð verði utan um allan hópinn og frekara samtal geti farið fram.
Í ljósi þessarar ákvörðunar ráðum við meðlimum GR eindregið frá því að fjárfesta hér eftir í einkabílum á forsendu um að nota þá á völlum GR.
Kær kveðja,
stjórn Golfklúbbs Reykjavíkur
Nánari skýringar:
- Aðlögunartímabil er lengt samkvæmt framansögðu. Verði knýjandi rök til enn frekari aðlögunr, t.d. ef tafir verða á undirbúningi, aðstöðu, bílakosti eða þjónustu, verður sjálfsagt að lengja tímabilið enn frekar þar til klúbburinn getur staðið við það sem lagt er upp með.
- Markmiðið er að vernda völlinn og bæta upplifun allra meðlima. Ákvörðunin er fyrst og fremst tekin út frá þörfum vallarins og þar með meðlima til lengri tíma. Einkabílar eru mjög mismunandi að þyngd, dekkjum, fjöðrun og búnaði. Þetta veldur ójöfnu álagi á brautir og önnur svæði sem rýrir gæði leiksins og eykur viðhaldskostnað sem bitnar á okkur félagsmönnum. Við gerum miklar kröfur til góðrar umgengni og snyrtimennsku. Ákvörðun um golfbíla er mikilvægur liður í að verða við þessum kröfum. Með samræmdum bílakosti getum við:
stýrt umferð með GPS
• varið viðkvæm svæði
• tryggt öryggi
• haldið viðhaldskostnaði í hófi
Það eru of margir dagar þar sem við höfum þurft að loka völlunum fyrir bílaumferð vegna bleytu. Við gerum ráð fyrir að geta fækkað þessum dögum með samræmdum bílakosti.
- Ætlunin er að mæta enn betur þörfum þeirra sem þurfa bíl til að geta spilað. Það er grundvallaratriði að þeir sem treysta á bíl vegna heilsu, hreyfingar eða líkamlegra aðstæðna geti áfram spilað golf við góðar og öruggar aðstæður. Klúbbnum er umhugað að veita þessa þjónustu. Næstu tvö ár verða nýtt til að:
- halda áfram að uppfæra bílakostinn og geymsluaðstöðu
- ræða við félaga sem hafa sérstakar þarfir svo unnt sé að mæta þeim
- Geta ber þess að klúbburinn hefur boðið félagsmönnum, sem þurfa golfbíl reglulega, upp á golfbíla án fjöldatakmarkana gegn greiðslu árlegs gjalds, sem hefur verið mjög hóflegt. Stefna klúbbsins er að gjald fyrir golfbíl sé í hófi, standi undir raunkostnaði en ekkert umfram það.
- Ákvörðunin nú er ekki til að útiloka neinn. Flestir stórir golfklúbbar erlendis hafa þegar tekið svona ákvörðun með góðum árangri. Án svona ákvörðunar er fyrirsjáanlegt að einkabílum fjölgi mikið á næstu árum, sem myndi gera ákvörðunina sem nú er tekin enn erfiðari.
Kær kveðja,
stjórn Golfklúbbs Reykjavíkur


