Uppskeruhátið barna- og unglinga – met mæting og mikil gleði!

Uppskeruhátíð barna- og unglingstarfs GR fór fram í síðustu viku – þjálfarar voru búin að setja upp þrautir fyrir iðkendur og 2. hæðin á Korpunni iðaði af lífi og fjöri 🏌️‍♀️🏌️‍♂️

Á uppskeruhátíðinni fögnum við golfsumrinu þar sem veitt eru verðlaun fyrir Icelandair Cargo, innanfélagsmótaröðin okkar. Einnig krýnum við stigameistara mótaraðarinnar 🥇🥈🥉 

Stigameistari Icelandair Cargo árið 2025 er Viktoría Helga Tryggvadóttir 🏆

Helstu úrslit úr flokkum eru þessi:

Piltar forgjöf 40 og hærri

  1. sæti – Hreiðar Birkir Baldvinsson
  2. Ásdór Þór Gunnarsson
  3. Leó Myrkvi Þorsteinsson og Sævar Hrafn Garðarsson

Piltar 12 ára og yngri

  1. sæti – Bjartmar Atlason
  2. sæti – Tómas Númi Sigurbjörnsson
  3. sæti – Ísak Hrafn Jónasson og Pétur Franklín Atlason

Stúlkur 12 ára og yngri

  1. sæti – Bergdís Freyja Valsdóttir

Piltar 13-14 ára

  1. Gunnar Freyr Þorsteinsson
  2. Ingimar Jónasson
  3. Gunnar Ágúst Snæland

Stúlkur 13-14 ára

  1. sæti – Ásta Rebekka Þorsteinsdóttir

Piltar 15-18 ára

  1. sæti – Sebastian Blær Ómarsson
  2. sæti – Birgir Steinn Ottósson
  3. sæti – Sigurður Guðni Snæland

Stúlkur 15-18 ára

  1. sæti – Viktoría Helga Tryggvadóttir
  2. sæti – Emma Lovísa Arnarsson
  3. sæti – Katla María Sigurbjörnsdóttir

Stúlkur 19 ára og eldri

  1. sæti – Sara Ágústa Sigurbjörnsdóttir

Nú er komið hlé á æfingum fram í nóvember en þjálfarar hvetja iðkendur til að spila á meðan vellir eru opnir og mæta í Bása og nýta æfingasvæðið! Við þökkum ungmennum klúbbsins fyrir frábært golfsumar og skemmtilega uppskeruhátíð!

Golfklúbbur Reykjavíkur óskar öllum til hamingju með sinn árangur – áfram GR ⛳️⛳️⛳️