Ef þú þarft kvittun fyrir félagsgjaldi hjá Golfklúbbi Reykjavíkur, þá geturðu auðveldlega sótt hana í XPS félagakerfi GR.
Svona sækirðu kvittun:
Farðu á xpsclubs.is/login og skráðu þig inn með rafrænum skilríkjum.
Veldu Golfklúbbur Reykjavíkur.
Smelltu á nafnið þitt efst í hægra horni, veldu „Skráningar“.
Þar birtast þínar hreyfingar og sú nýjasta efst, veldu „kvittun“.
Hægri smelltu á kvittunina og veldu að prenta hana út á pappír eða prenta hana sem PDF skjal og vista í tölvunni hjá þér.
ATH! Eingöngu er hægt að nálgast kvittun þegar félagsgjöld eru fullgreidd.
Einfalt, þægilegt og fljótlegt 😉
Ef þú þarft aðstoð, hafðu samband við skrifstofu GR á gr@grgolf.is


