Vel heppnaður fundur með framboðum um framtíð golfs í Reykjavík

Þann 21. apríl síðastliðinn fór fram opinn fundur í félagsaðstöðu Golfklúbbur Reykjavíkur þar sem fulltrúar framboða til borgarstjórnarkosninga í Reykjavík kynntu stefnu sína og hugmyndir um framtíð golfíþróttarinnar innan borgarlandsins.

Fundurinn var afar vel sóttur og mætti fjöldi kylfinga og áhugafólks um golf til að hlýða á framboðin, leggja fram spurningar og taka þátt í uppbyggilegu samtali. Umræðurnar voru líflegar og málefnalegar, þar sem fjölmargir mikilvægir þættir komu til skoðunar, þar á meðal aðgengi að golfvöllum, uppbygging aðstöðu og hvernig best sé að mæta ört vaxandi áhuga á íþróttinni.

Það er mat skipuleggjenda að fundurinn hafi tekist einstaklega vel. Skýr vilji kom fram hjá fulltrúum framboðanna til að styðja við áframhaldandi þróun golfíþróttarinnar í Reykjavík. Sérstaklega var ánægjulegt að sjá hversu jákvæð afstaða var gagnvart golfi sem fjölskyldu- og lýðheilsuíþrótt sem nýtist öllum aldurshópum.

Fulltrúar flokkanna tóku vel í hugmyndir fundarmanna um að auka aðgengi Reykvíkinga að golfíþróttinni og bæta aðstöðu til iðkunar. Jafnframt sýndu þeir skilning á mikilvægi þess að bregðast við aukinni eftirspurn og löngum biðlistum með markvissri uppbyggingu til framtíðar.

Golfklúbbur Reykjavíkur mun halda áfram samtali við nýja borgarstjórn strax að loknum kosningum, með það að markmiði að tryggja áframhaldandi vöxt, aðgengi og sterka stöðu golfíþróttarinnar í borginni.

Við hvetjum félagsmenn og alla áhugasama til að kynna sér fundinn í heild sinni hér fyrir neðan og taka þátt í áframhaldandi umræðu um framtíð golfíþróttarinnar í Reykjavík.

Upptöku af fundinum má finna hér.

Golfklúbbur Reykjavíkur