Golfklúbbur Reykjavíkur sendir árlega út viðhorfskönnun til félagsmanna. Undanfarin ár hefur þessi könnun verið okkur, sem stjórnum klúbbnum, uppspretta hugmynda og ákvarðana sem snúa að öllum þáttum í starfsemi félagsins. Það hefur verið ómetanlegt að fá viðhorfin beint í æð og komið að miklu gagni við alla ákvarðanatöku.
Eins og fram hefur komið í fréttum úr starfseminni síðasta árið er mikil uppbygging fyrirhuguð á næstu árum, töluverðar fjárfestingar og aukin þjónusta. Okkur sem störfum fyrir klúbbinn er mikill greiði gerður, ef meðlimirnir hjálpa okkur að fylgjast með viðhorfi þeirra til almennrar þjónustu og uppbyggingar næstu árin.
Meðfylgjandi er hlekkur á könnunina og biðjum við þig um að svara henni við fyrsta tækifæri, könnunin verður opin til kl. 12:00 föstudaginn 21. nóvember.
Kveðja
Stjórn og starfsfólk GR


