Nýir félagar
Nýir
félagar
Hjá GR er eitt besta aðgengi að golfi á höfuðborgarsvæðinu. Við bjóðum upp á tvo glæslilega golfvelli, á Korpúlfsstöðum og í Grafarholti. Á Korpúlfsstöðum er 27 holu völlur og er alltaf hægt að bóka sig á annað hvort 9 eða 18 holu hring. Í Grafarholti er einn elsti golfvöllur landsins, bæði skemmtilegur og krefjandi að spila og er alltaf boðið upp á að spila þar 18 holur. Félagsstarf klúbbsins er öflugt allt árið um kring og ættu allir aldurshópar ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Í klúbbhúsum okkar er boðið upp á fyrsta flokks þjónustu fyrir félagsmenn sem og aðra gesti og er aðstaðan til fyrirmyndar. Tilvalin staður til að kynnast nýju fólki og stunda hreyfingu og útvist á sama tíma.
Á okkar snærum er að finna menntaða PGA golfkennara sem sjá meðal annars um golfkennslu fyrir félagsmenn ásamt því að stýra gríðarlega metnaðarfullu barna- og unglingastarfi félagsins allt árið um kring.
Hvað felst í
félagsaðild?
Það eru spennandi tímar framundan hjá Golfklúbbi Reykjavíkur og má hér sjá það helsta sem í boði er fyrir félagsmenn GR:
- 18 holu golfvöllur í Grafarholti
- 27 holu golfvöll á Korpúlfsstaðvelli
- 6 holu æfingavöllur í Grafarkoti
- 9 holu æfingavöll á Korpúlfsstaðavelli
- Æfingasvæði á báðum völlum fyrir vipp og pútt
- Æfingasvæðið Básar - www.basar.is
- Klúbbhús þar sem boðið er upp á fyrsta flokks þjónustu, veitingar og aðstöðu - KH Klúbbhús
- Aðgangur á vinavelli GR - Vinavellir
- PGA golfkennarar sem bjóða upp á golfnámskeið fyrir félagsmenn bæði yfir sumartímann og vetrartímann,
- einstaklings og hópakennsla
- Inniæfingaaðstaða á Korpu yfir veturinn
- Öflugt barna-, unglinga- og afreksstarf
- Í félagi okkar er öflugt félagsstarf - kvennastarf, karlastarf, eldri kylfingastarf og klúbbastarf allt árið
- Gott upplýsingastreymi fyrir félagsmenn
- Golfbúðir á báðum völlum okkar
- Golfbílar til leigu fyrir félagsmenn og gesti
- Fjöldi golfmóta, bæði innanfélags og opin mót
- Góð þjónusta
Hafir þú hug á að sækja um aðild að klúbbnum þá mælum við með að þú gerir það strax í dag!