Kæru félagsmenn
Rétt eins og kom fram í fréttabréfi um liðna helgi að þá er inniæfingaaðstaðan á Korpu lokuð á morgun, þriðjudaginn 21. apríl, vegna stefnumóts við oddvita framboða í Reykjavík.
Við hvetjum öll til að mæta á stefnumótið og hafa þannig áhrif á framtíð okkar ástsælu íþróttar í borginni.
Staðsetning: Korpa, 2. hæð
Tímasetning: kl. 19:30
Boðið verður upp á léttar kaffiveitingar!


