Customize Consent Preferences

Þessi vefur nýtir sér vafrakökur (e. web cookies) til að bæta virkni hans og hjálpa stjórnendum vefsins að greina notkun hans.

Það er stefna Golfklúbbur Reykjavíkur að nota vafrakökur með ábyrgum hætti.

Allar persónuupplýsingar sem kunna að að verða til við notkun á kökum verða meðhöndlaðar og unnið með þær í samræmi við persónuverndarlög.... 

Always Active

Necessary cookies are required to enable the basic features of this site, such as providing secure log-in or adjusting your consent preferences. These cookies do not store any personally identifiable data.

No cookies to display.

Functional cookies help perform certain functionalities like sharing the content of the website on social media platforms, collecting feedback, and other third-party features.

No cookies to display.

Analytical cookies are used to understand how visitors interact with the website. These cookies help provide information on metrics such as the number of visitors, bounce rate, traffic source, etc.

No cookies to display.

Performance cookies are used to understand and analyze the key performance indexes of the website which helps in delivering a better user experience for the visitors.

No cookies to display.

Advertisement cookies are used to provide visitors with customized advertisements based on the pages you visited previously and to analyze the effectiveness of the ad campaigns.

No cookies to display.

ECCO- púttmótaröðin 2025 – Lokastaðan

Keppni er lokið á Ecco púttmótaröðinni, sem er púttmótaröð karla hjá Golfkúbbi Reykjavíkur.

Jónas Gunnarsson er besti púttari Golfklúbbs Reykjavíkur 2025, sigraði nokkuð örugglega ungu drengina úr liði 1 sem skipuðu annað og þriðja sætið.

Eftir umspil við lið 4, eins og í fyrra, varð lið nr. 1 nr. 1. Þessi tvö lið höfðu nokkra yfirburði yfir önnur lið og börðust um sigurinn svo að segja frá fyrstu umferð. Í þriðja sæti varð svo lið nr. 32.

Bestu þakkir til Ecco sem er styrktaraðili mótaraðarinnar og ekki síður þakkir til þeirra félaga sem eru með á mótaröðinni og komu færandi hendi með verðlaun þetta árið. Jóhannes Oddur Bjarnason í Danól kom færandi hendi í byrjun með kaffi og glös sem dugði alla mótaröðina og lagði svo til tvo vinninga að auki þrátt fyrir að vera ekki með á mótaröðinni, alveg einstakur félagi. Svo er vert að minnast á Geira frá Stjörnugrís, Guðmundur Björnsson í Flotun er alltaf traustur, Kjarri í Kólus sér um páskaeggin enn eitt árið, Jón Karlsson golfkennari og Ólafur Gylfason frá Nieva létu sitt ekki eftir liggja ásamt fleirum.

Einnig ber að þakka þeim fjölmörgu fyrirtækjum sem finnst bara sjálfsagt að styrkja svona félagsskap hjá GR. Má þar nefna Myndform, Laugar Spa, Herrafataverslunina Karlmenn og mörg önnur. Átta lið fengu klst í hermi hjá Viggó í Golfklúbbnum. Takk kærlega fyrir það.

Ekki má gleyma að þakka okkar allra besta manni, Atla Þór Þorvaldssyni, sem er mín hægri hönd í þessu öllu saman. Ómar Örn framkvæmdastjóri GR, Dóra Eyland og Harpa Ægis standa vel að baki mér og gera þetta allt framkvæmanlegt. Bestu þakkir fyrir það.

Að lokum óska ég sigurvegurunum til hamingju með árangurinn .

Svo að endingu þakka ég öllum fyrir þátttökuna í vetur og vonandi hafa allir haft einhverja ánægju af. Gangi ykkur vel í golfinu í sumar.

Meðfylgjandi er lokastaðan í ECCO-púttmótaröðinni 2025.

Bestu kveðjur,

Halldór B. Kristjánsson