Á 2. hæð Korpúlfsstöðum er 18 holu púttvöllur þar sem hægt er að æfa púttið allan ársins hring. Aðstaðan er opin félagsmönnum alla virka daga og um helgar, opnunartíma inniæfingaraðstöðu má sjá í töflu hér að neðan.
Aðstaðan er einnig notuð fyrir æfingar barna-, unglinga- og afreksstarf klúbbsins. Púttmót karla og kvenna sem haldin eru á hverju ári eru einnig haldin hér og birtast tímasetningar hér.
Félagsmenn ath! Komi til þess að æfingar í barna-, unglinga- og afreksstarfi færist til fyrirvaralaust þá ganga æfingar fyrir með afnot af inniæfingaaðstöðunni.