Mótaröð barna- & unglinga

Icelandair Cargo - mótaröð

Icelandair Cargo mótaröðin er ætluð meðlimum Golfklúbbs Reykjavíkur 18 ára og yngri, keppt er í 8 mismunandi flokkum og verður leikið  á Korpúlfsstaðavelli á þriðjudagsmorgnum síðan sumarið 2018. Mótaröðin hefur reynst góður stökkpallur fyrir þau yngstu til þess að öðlast leik- og keppnisreynslu ásamt því að mikil spenna og stemning myndast í öllum flokkum.

Þátttaka og leikfyrir- komulag

Allir iðkendur Golfklúbbs Reykjavíkur,  18 ára og yngri, sem greiða félagsgjöld í klúbbinn og hafa öðlast löglega EGA forgjöf geta skráð sig til leiks. Það er því ákveðin hvatning fyrir þá sem hafa ekki fengið forgjöf að drífa í því til þess að geta tekið þátt í mótaröðinni.

Leikin eru 10 mót og af þeim gilda 6 bestu til verðlauna, leikin er punktakeppni svo að allir hafi jafna möguleika á að sigra. Gefin eru stig eftir árangri í hverju móti og í lok sumars verða stigameistarar hvers flokks krýndir ásamt því að sá keppandi sem hlýtur flest stigin hlýtur titilinn Icelandair Cargo Stigameistari GR. Verðlaun verða veitt á glæsilegu lokahófi sem haldið er í ágúst.

Keppendum er frjálst að taka þátt í eins mörgum mótum og þeir vilja. Skráning fer fram í gegnum Golfbox.

Vakni einhverjar spurningar er hægt að senda tölvupóst á berglind@grgolf.is

Allar tilkynningar varðandi mótin munu koma á facebook síðu barna og unglingastarfs GR,  Golfklúbbur Reykjavíkur – Æfingar

Flokkar

17-18 ára kk. Hvítir 17-18 ára kvk Hvítir
15-16 ára kk. Gulir 15-16 ára kvk. Bláir
14 ára og yngri kk. Rauðir/Bláir 14 ára og yngri kvk. Rauðir
Fgj. 30,5 og hærra kk. Gull (9) Fgj. 30,5 og hærra kvk. Gull (9)

Leikdagar