Customize Consent Preferences

Þessi vefur nýtir sér vafrakökur (e. web cookies) til að bæta virkni hans og hjálpa stjórnendum vefsins að greina notkun hans.

Það er stefna Golfklúbbur Reykjavíkur að nota vafrakökur með ábyrgum hætti.

Allar persónuupplýsingar sem kunna að að verða til við notkun á kökum verða meðhöndlaðar og unnið með þær í samræmi við persónuverndarlög.... 

Always Active

Necessary cookies are required to enable the basic features of this site, such as providing secure log-in or adjusting your consent preferences. These cookies do not store any personally identifiable data.

No cookies to display.

Functional cookies help perform certain functionalities like sharing the content of the website on social media platforms, collecting feedback, and other third-party features.

No cookies to display.

Analytical cookies are used to understand how visitors interact with the website. These cookies help provide information on metrics such as the number of visitors, bounce rate, traffic source, etc.

No cookies to display.

Performance cookies are used to understand and analyze the key performance indexes of the website which helps in delivering a better user experience for the visitors.

No cookies to display.

Advertisement cookies are used to provide visitors with customized advertisements based on the pages you visited previously and to analyze the effectiveness of the ad campaigns.

No cookies to display.

Alvöru golfnámskeið í apríl

Vorið er á næsta leyti og tíminn til að rífa sig í gang er núna!

Er ekki tilvalið þá að skella sér á golfnámskeið í apríl og fara inní sumarið vel æfður og undirbúin. Eftirfarandi námskeið verða í boði hjá Arnari Snæ í apríl:

Byrjendanámskeið – Besta leiðin til að byrja í golfi
Framhaldsnámskeið – Framhaldsnámskeið fyrir byrjendur til að taka næsta skrefið og þá sem eru að snúa sér aftur að golfi og vilja fá góða upprifjun
Almennt námskeið – Frábært námskeið fyrir alla kylfinga
Yfirferð fyrir lengri komna – Fyrir þá sem vilja yfirferð á öllum leiknum sínum fyrir sumarið

Nánari upplýsingar um námskeiðin má sjá hér fyrir neðan:

Byrjendanámskeið
Frábært námskeið fyrir þá sem eru að taka sín fyrstu skref í leiknum og vilja gera þetta rétt og ná tökum á leiknum sem fyrst. Námskeiðið er fimm skipti (4x 60 mín) frá klukkan 19:00-20:00 á miðvikudögum. Námskeiðið hefst miðvikudaginn 6.apríl og verður kennt á eftirtöldum dagsetningum:

6. apríl Básar Grip/staða
13. apríl Básar Grunnatriði sveiflunnar
20. apríl Básar Járnkylfur/trékylfur
27. apríl Básar Upprifjun og fínpúss

Verð kr. 20.000 (Boltar ekki innifaldir)

Framhaldsnámskeið
Námskeið fyrir golfara sem eru að byrja aftur og vilja góða upprifjun. Námskeiðið er fjögur skipti (4x 60 mín) frá klukkan 17:30-18:30 á mánudögum og miðvikudögum. Námskeiðið hefst mánudaginn 4.apríl og verður kennt á eftirtöldum dagsetningum:

4. apríl Básar Grip/Staða
6. apríl Básar Járnahögg
11. apríl Básar Trékylfur
14. apríl Básar Upprifjun og fínpúss

Verð kr. 20.000 (Boltar ekki innifaldir)

Almennt námskeið
Upplagt námskeið fyrir þá kylfinga sem ætla að fara með leikinn sinn á næsta plan í sumar. Námskeiðið er fimm skipti (5x 60 mín) frá klukkan 17:00-18:00 á þriðjudögum og fimmtudögum. Námskeiðið hefst mánudaginn 15.apríl og verður kennt á eftir eftirtöldum dagsetningum:

5. apríl Básar Járnahögg og lengdir
7. apríl Básar Teighögg
12. apríl Básar Brautartré
19. apríl Básar Boltaflug/leikskipulag
21. apríl Básar Pitch/Stutthögg

Verð kr. 24.000 (Boltar ekki innifaldir)

Yfirferð fyrir lengri komna
Upplagt námskeið fyrir þá kylfinga sem ætla að fara með leikinn sinn á næsta plan í sumar. Námskeiðið er fimm skipti (5x 60 mín) frá klukkan 17:30-18:30 á mánudögum og miðvikudögum. Námskeiðið hefst mánudaginn 4.apríl og verður kennt á eftir eftirtöldum dagsetningum:

4. apríl Básar Járnahögg/lengdir
6. apríl Básar Teighögg/Boltaflug
11. apríl Básar Blendingar/trékylfur
13. apríl Básar Leikskipulag/mið
20. apríl Básar Pitch/Stutt högg

Verð kr. 24.000 (Boltar ekki innifaldir)

Hámarksfjöldi í hverjum hóp eru fjórir kylfingar. Kennari verður Arnar Snær Hákonarsson PGA golfkennari og fara skráningar fram í gegnum netfangið arnarsn@grgolf.is