Bingó á morgun – föstudaginn 21. mars

Þriðja og síðasta bingó vorsins verður haldið á morgun föstudaginn 21. mars.

Bingó er liður í vetrarstarfi eldri kylfinga klúbbsins, 65 ára og eldri. Margir taka bingódaginn snemma og byrja á því að pútta á efri hæð Korpunnar.

Ath! Bingó hefst á slaginu kl.10:00 í veitingasal Korpu. Bingóspjaldið kostar 500 kr., hægt er að greiða með pening eða korti.

Við hvetjum alla félagsmenn sem hafa náð 65 ára aldri til að mæta og hafa gaman saman. Flottir vinningar í boði.