Bingó eldri kylfinga haldið föstudaginn 3. nóvember

Næsta bingó eldri kylfinga verður haldið föstudaginn 3. nóvember og hefst stundvíslega kl. 10:30 í veitingasal Korpu. Bingó er liður í vetrarstarfi eldri kylfinga klúbbsins, 60 ára og eldri og hafa viðburðir verið vel sóttir enda vel að þeim staðið og eru ávallt flottir vinningar í boði.

Dagská bingónefndar á haustmánuðum lítur svona út:

  • 20. október
  • 3. nóvember
  • 17. nóvember
  • 1. desember
  • 19. desember – Jólabingó

Við hvetjum alla þá kylfinga sem hafa náð 60 ára aldri til að mæta og taka þátt!

Golfklúbbur Reykjavíkur