Ný frábær byrjendanámskeið komin á dagskrá hjá Arnari Snæ í mars. Tilvalið fyrir þá sem eru að taka sín fystu skref í íþróttinni og vilja gera þetta rétt til að ná tökum á leiknum sem fyrst.
Nánari upplýsingar um námskeiðin má sjá hér fyrir neðan:
Byrjendanámskeið á fimmtudögum
Námskeiðið er kennt á fimmtudögum kl 18:00-19:00. Kennt verður á eftirtöldum dagsetningum og hefst námskeiðið fimmtudaginn 7.mars í Básum, Grafarholti
- 7.mars: Básar
- 14.mars: Básar
- 21.mars: Básar
- 28.mars: Básar (Skírdagur)
Byrjendanámskeið á laugardögum
Námskeiðið er kennt á laugardögum kl 11:00-12:00. Kennt verður á eftirtöldum dagsetningum og hefst námskeiðið laugardaginn 9.mars í Básum, Grafarholti
- 9.mars: Básar
- 16.mars: Básar
- 23.mars: Básar
- 30.mars: Básar
Verð kr. 20.000 (boltar ekki innifaldir)
Hámarksfjöldi í hverjum hóp eru 4 kylfingar.
Kennari er Arnar Snær Hákonarsson PGA golfkennari og fara skráningar fram í gegnum netfangið arnarsn@grgolf.is