Byrjendanámskeið eru besta leiðin til að byrja í golfi. Arnar Snær, PGA golfkennari, er kominn með fjögur ný námskeið fyrir byrjendur á dagskrá núna í júní. Nánari upplýsingar um námskeiðin má sjá hér fyrir neðan.
Byrjendanámskeið 1
Frábært námskeið fyrir þá sem eru að taka sín fyrstu skref í leiknum og vilja gera þetta rétt og ná tökum á leiknum sem fyrst. Námskeiðið er fjögur skipti (4x 60 mín) frá klukkan 18:00-19:00 á mánudögum og miðvikudögum. Námskeiðið hefst mánudaginn 19.júní og verður kennt á eftirtöldum dagsetningum:
- 19.júní: Básar – Grunnatriði golfsveiflunar
- 21.júní: Básar – Teighögg og lengri kylfur
- 26.júní: Básar – Pútt og Vipp
- 3.júlí: Básar – Reglur og hvernig er best að byrja að spila
Verð 20.000 kr. (Boltar ekki innifaldir)
Byrjendanámskeið 2
Frábært námskeið fyrir þá sem eru að taka sín fyrstu skref í leiknum og vilja gera þetta rétt og ná tökum á leiknum sem fyrst. Námskeiðið er fjögur skipti (4x 60 mín) frá klukkan 19:00-20:00 á mánudögum og fimmtudögum. Námskeiðið hefst mánudaginn 19.júní og verður kennt á eftirtöldum dagsetningum:
- 19.júní: Básar – Grunnatriði golfsveiflunar
- 22.júní: Básar – Teighögg og lengri kylfur
- 26.júní: Básar – Pútt og Vipp
- 6.júlí: Básar – Reglur og hvernig er best að byrja að spila
Verð 20.000 kr. (Boltar ekki innifaldir)
Byrjendanámskeið 3
Frábært námskeið fyrir þá sem eru að taka sín fyrstu skref í leiknum og vilja gera þetta rétt og ná tökum á leiknum sem fyrst. Námskeiðið er fjögir skipti (4x 60 mín) frá klukkan 20:00-21:00 á þriðjudögum og fimmtudögum. Námskeiðið hefst þriðjudaginn 20.júní og verður kennt á eftirtöldum dagsetningum:
- 20.júní: Básar – Grunnatriði golfsveiflunar
- 22.júní: Básar – Teighögg og lengri kylfur
- 27.júní: Básar – Pútt og Vipp
- 4.júlí: Básar – Reglur og hvernig er best að byrja að spila
Verð 20.000 kr. (Boltar ekki innifaldir)
Byrjendanámskeið í golfi (Helgarnámskeið) 17-18 júní
Frábært námskeið fyrir byrjendur sem vilja læra grunnatriðin í golfi þar sem farið verður alla þætti í sportinu. Á laugardeginum verður farið í allt sem við kemur stuttaspilinu farið verður í grunnatriði í hverjum hluta á sunnudeginum verður farið yfir sveifluna og tæknina á bakvið hana. Námskeiðið fjórir tímar (4x 60 mín) og verður kennt á laugardeginum og sunnudeginum frá klukkan kl. 10:00-12:00. Námskeiðið er laugardaginn 17.júní og sunnudaginn 18.júní og verður í Básum, Grafarholti
Verð 20.000 kr. (Boltar ekki innifaldir)
Hámarksfjöldi í hverjum hóp eru fjórir kylfingar. Kennari verður Arnar Snær Hákonarsson PGA golfkennari og fara skráningar fram í gegnum netfangið arnarsn@grgolf.is