Byrjendanámskeið eru besta leiðin til að byrja í golfi og hefur Arnar Snær nú sett ný byrjendanámskeið á dagskrá í september, boðið verður upp á þrjú námskeið þar sem kennt er fjögur skipti í senn. Nánari upplýsingar um námskeiðin má sjá hér fyrir neðan.
Byrjendanámskeið 1
Frábært námskeið fyrir þá sem eru að taka sín fyrstu skref í leiknum og vilja gera þetta rétt og ná tökum á leiknum sem fyrst. Námskeiðið er fjögur skipti (4x 60 mín) frá klukkan 20:00-21:00 á mánudögum og miðvikudögum. Námskeiðið hefst mánudaginn 18.sept og verður kennt á eftirtöldum dagsetningum:
- 18.sept: Básar – Grunnatriði golfsveiflunar
- 20.sept: Básar – Teighögg og lengri kylfur
- 25.sept: Básar – Pútt og Vipp
- 27.sept: Básar – Reglur og hvernig er best að byrja að spila
Byrjendanámskeið 2
Frábært námskeið fyrir þá sem eru að taka sín fyrstu skref í leiknum og vilja gera þetta rétt og ná tökum á leiknum sem fyrst. Námskeiðið er fjögur skipti (4x 60 mín) frá klukkan 19:00-20:00 á mánudögum og miðvikudögum. Námskeiðið hefst miðvikudaginn 20.sept og verður kennt á eftirtöldum dagsetningum:
- 20.sept: Básar – Grunnatriði golfsveiflunar
- 25.sept: Básar – Teighögg og lengri kylfur
- 27.sept: Básar – Pútt og Vipp
- 2.okt: Básar – Reglur og hvernig er best að byrja að spila
Byrjendanámskeið 3
Frábært námskeið fyrir þá sem eru að taka sín fyrstu skref í leiknum og vilja gera þetta rétt og ná tökum á leiknum sem fyrst. Námskeiðið er fjögir skipti (4x 60 mín) frá klukkan 19:00-20:00 á þriðjudögum og fimmtudögum. Námskeiðið hefst þriðjudaginn 19.sept og verður kennt á eftirtöldum dagsetningum:
- 19.sept: Básar – Grunnatriði golfsveiflunar
- 21.sept: Básar – Teighögg og lengri kylfur
- 26.sept: Básar – Pútt og Vipp
- 28.sept: Básar – Reglur og hvernig er best að byrja að spila
Verð fyrir námskeið er kr. 20.000 (Boltar ekki innifaldir)
Hámarksfjöldi í hverjum hóp eru fjórir kylfingar. Kennari verður Arnar Snær Hákonarsson PGA golfkennari og fara skráningar fram í gegnum netfangið arnarsn@grgolf.is