Ecco-Mótaröðin hefst fimmtudaginn 23. janúar og stendur yfir í 8 vikur. Mæting er frá 15:00 til 20:30. Lokakvöldið verður svo föstudagskvöldið 14. mars.
Skráning
Til að flýta fyrir skráningu væri gott að fá tölvupóst frá þeim sem ætla að vera með.
Hvort sem lið verða eins og í fyrra eða breytast eitthvað. Eins ef menn eru ekki komnir í lið þá er hugsanlega hægt að finna út úr því áður en leikur hefst osfrv.
Sem sagt, gott að fá þátttökutilkynningar og eins miklar upplýsingar eins og hægt er á netfangið leturval@litrof.is eða í síma 898 3795.
Fimm bestu umferðirnar af átta telja
Mótið verður með sama sniði og undanfarin ár. Leiknir eru 2 hringir á hverju kvöldi, eða 36 holur.
Einstaklingskeppnin:
Keppt verður um púttmeistara klúbbsins og skilar hver leikmaður 36 holu skori hvert kvöld.
Liðakeppnin:
Nú telja allir í 4 manna liði. Þó er ekkert sem útilokar þriggja manna lið. Ef hins vegar eru fleiri en fjórir í liði þarf að tilkynna hver telur ekki í liðakeppninni áður en leikur hefst en allir eru að sjálfsögðu með í einstaklingskeppninni. Liðið skilar svo inn einu skori sem samanstendur af bestu fjórum 18 holu hringjunum af sex eða átta fer etir fjölda í hverju liði.
Eins og í fyrra:
Viggó, í Golfklúbbnum Fossaleyni 6, býður liði hverrar viku uppá 1 klst. í hermi og verður dregið um hvaða lið hlýtur hnossið hverju sinni.
Mótsgjaldið er kr. 5000, sem leikmenn greiða fyrsta kvöldið.
Þetta verður annars allt með sama hætti og í fyrra; lítill bjór verður seldur á 500 kall en boðið verður uppá kaffi.
Munið að mæta með lausafé því ekki er hægt að greiða mótsgjald eða veitingar með korti.
Ef eitthvað er óljóst þá er bara að hringja í 898 3795 eða senda tölvupóst.
Svo höfum við bara gaman af þessu öllu saman.
Kveðja
Halldór B. Kristjánsson
leturval@litrof.is