ECCO- púttmótaröðin 2023 – Staðan eftir 9. umferð

Þá er bara lokaumferðin eftir þar sem endanleg úrslit ráðast. Páll Birkir Reynisson (1) er orðinn nokkuð öruggur um að verða besti púttari Ecco-mótaraðarinnar 2023 það verður fátt sem kemur í veg fyrir það. Hins vegar er allt upp í loft í liðakeppninni þó svo að annað hvort lið 1 og 4 séu líklegir sigurvegarar er ekkert öruggt í þeim efnum. Þetta verður eitthvað.

Besta skor kvöldsins, 52 pútt, átti  hinn umtalaði Páll Birkir og fær hann í annað sinn tímann hjá Viggó í Golfklúbbnum í Fossaleyni.

Lokaumferðin er fimmtudaginn 23. mars!

Rástímar eru hugsaðir þannig að efstu 4 liðin mæta um kl. 19 og fara af stað um kl. 19:30. Annars er best að menn haldi sínum tímum en mæti þó ekki seinna en um kl. 19. Annars fer þetta bara eins og það fer.

Sem sagt; enginn þátttakandi komi seinna til leiks en 19:30.

Sendið mér endilega póst og látið mig vita ef fyrirsjáanlegt er að þið komist ekki í lokapartýið. Það auðveldar mér alla skipulagningu.

Verðlaunaafhendingin, sem er fyrir alla, hefst um leið og úrslit liggja fyrir. Það eru ekki einungis þeir sem ná einhverjum sætum sem fá verðlaun heldur verður eitthvað af vinningum fyrir  þá sem voru ekki alveg eins góðir og hinir. Verðlaunaskráin er ekki klár ennþá frekar en fyrri daginn en það verður eitthvað spennandi – ég trúi bara ekki öðru.

Þó er ljóst að 10 efstu sætin í einstaklingskeppninni fá eitthvað fyrir sinn snúð og 7-10 efstu liðin. Athugið að verðlaun miðast við fjóra í liði..

Ath! Púttvöllurinn verður ekki klár fyrr en um kl. 16. Ekki verður hægt að byrja að pútta fyrr en þá.

Sem sagt: Þeir sem vilja pútta um miðjan dag fara bara heim, horfa á fréttirnar sem dæmi, koma svo galvaskir í partýið um kl. 20 til að rabba við félagana, fylgjast með þeim bestu og hugsanlega hirða upp einhverja vinninga þegar þar að kemur. Til að fá verðlaun verða menn að vera með í partýinu.

Boðið verður uppá léttar veitingar eins og undanfarin ár, þó ekki bjór sem verður til sölu á 500 kallinn eins og verið hefur.

Þá held ég að allt sé komið fram sem þarf að koma fram en ef það eru einhverjar spurningar varðandi lokakvöldið þá er bara að hafa samband hvenær sem er.

Nokkrir leikmenn mótaraðarinnar hafa gefið mér flotta vinninga, til að gleðja ykkur hina, og færi ég þeim mínar bestu þakkir.

 

Svo höfum við bara gaman af þessu öllu saman.

Annars bara kátur.

Meðfylgjandi er staða liða og einstaklinga eftir

 

Bestu kveðjur,

Halldór B. Kristjánsson

898 3795

leturval@litrof.is