Þá er þessu að ljúka og aðeins lokaumferðin eftir sem fram fer FÖSTUDAGINN 14. MARS. Fimmtudaginn næsta notið þið til æfinga og komið sterkir til leiks daginn eftir. Athugið lokaumferðin er á næsta föstudegi svo það sé sagt. Magnús Guðmundsson (26) var í annað skiptið á mótaröðinni með besta skor kvöldsins, 53 pútt, og kom sér þar með í 6. til 7. sæti einstaklinga en þar eru Jónas Gunnarsson (4) og Arnór Tjörvi Þórsson (1) hnífjafnir í einstaklingskeppninni og þar getur allt gerst þar sem fleiri bíða færis.
Lið 4 á fyrir síðustu umferðina aðeins eitt pútt á lið 1 og hafa þau nokkuð góða forystu á önnur lið sem á eftir koma. En baráttan um næstu sæti þar á eftir verður spennandi.
Lið 24 fékk klukkutímann hjá Viggó í Golfklúbbnum og bið ég liðsmenn að nálgast plagg þess efnis hjá mótsstjóra.
LOKAUMFERÐIN
Rástímar eru hugsaðir þannig að efstu 8 liðin, miðað við núverandi stöðu, mæti frá kl. 18.30 til 19 og fara af stað ekki seinna en 19:15. Gaman að hafa þá bestu alla saman á gólfinu í einu. ATH! Hægt verður að hefja leik að þessu sinni frá kl. 14 hundruð.
Annars fer þetta bara eins og þetta fer.
VERÐLAUNAAFHENDIN
Verðlaunaafhendingin hefst um leið og úrslit liggja fyrir. Það eru ekki einungis þeir sem ná einhverjum sætum sem fá verðlaun heldur verður eitthvað af glaðningum fyrir þá sem voru ekki alveg eins góðir og hinir. Verðlaunaskráin er ekki klár ennþá frekar en fyrri daginn en það verður eitthvað spennandi – ég trúi bara ekki öðru.
Þó er klossöruggt að 8 efstu sætin í einstaklingskeppninni fá eitthvað fyrir sinn snúð og 8 efstu liðin. Athugið að verðlaun miðast við fjóra í liði.
Sem sagt: Þeir sem vilja pútta um miðjan dag fara bara heim, horfa á fréttirnar sem dæmi, koma svo galvaskir í partýið um kl. 20 til að rabba við félagana, fylgjast með þeim bestu og hugsanlega hirða upp einhvern glaðning þegar þar að kemur. Til að vera með í útdrættinum verða menn að vera á staðnum.
Til að útdrátturinn gangi vel fyrir sig er mjög vinsamlegt af þeim sem ekki sjá sér fært að mæta í lokapartýið láti mig vita til þess að ég sé ekki að kalla upp nöfn sem ekki eru á staðnum.
Boðið verður uppá léttar veitingar eins og undanfarin ár, þó ekki bjór sem verður til sölu á 500 kallinn eins og verið hefur.
Þá held ég að allt sé komið fram sem þarf að koma fram en ef það eru einhverjar spurningar varðandi lokakvöldið þá er bara að hafa samband hvenær sem er.
Annars bara kátur.
Meðfylgjandi er staða liða og einstaklinga eftir 7. umferð.
Bestu kveðjur, Halldór B. Kristjánsson