Eldri kylfingar athugið – bingó á Korpu föstudaginn 1. desember

Næsta bingó eldri kylfinga verður haldið föstudaginn 1. desember og hefst stundvíslega kl. 10:30 í veitingasal Korpu. Bingó er liður í vetrarstarfi eldri kylfinga klúbbsins, 60 ára og eldri og hafa viðburðir verið vel sóttir enda vel að þeim staðið og eru ávallt flottir vinningar í boði.

Næstu bingó viðburðir verða haldnir á eftirtöldum dagsetningum:

  • 1. desember
  • 19. desember – Jólabingó

Við hvetjum alla þá kylfinga sem hafa náð 60 ára aldri til að mæta og taka þátt!

Golfklúbbur Reykjavíkur