Eldri kylfingar: Fyrsta bingó vetrarins haldið 25. október

Fyrsta bingó eldri kylfinga þennan veturinn verður haldið föstudaginn 25. október.

Bingó er liður í vetrarstarfi eldri kylfinga klúbbsins, 65 ára og eldri og byrja margir daginn á því að pútta saman á efri hæð Korpunnar áður en bingó hefst í veitingasal kl. 10:30.

Þeir Halldór B. Kristjánsson og Sigurjón Á. Ólafsson hafa tekið nú tekið við keflinu og skipa bingónefnd.

Bingó verður haldið þessa daga fram að jólum:

  • 25. október
  • 22. nóvember
  • 13. desember – Jólabingó

Bingóspjaldið kostar kr. 500 og er ekki hægt að greiða með korti.

Almennt er vel mætt á þennan mánaðarlega viðburð eldri kylfinga og eru flottir vinningar í boði. Við hvetjum þá félagsmenn, sem hafa náð 65 ára aldri, til að mæta og taka þátt í bingóviðburðum í vetur.

Golfklúbbur Reykjavíkur