Félagsstarf eldri kylfinga – fyrsta bingó vetrarins – FRESTAÐ

BINGÓ SEM HALDA ÁTTI FÖSTUDAG 6. OKT – FRESTAÐ, NÝ DAGSETNING VERÐUR AUGLÝST Á NÆSTU DÖGUM.

Fyrsta bingó eldri kylfinga verður haldið föstudaginn 6. október næstkomandi. Bingó er liður í vetrarstarfi eldri kylfinga klúbbsins, 60 ára og eldri og byrjar morguninn á því að mætt er til leiks kl. 10:00 og púttað saman á efri hæð Korpunnar. Að pútti loknu sameinast hópurinn í kaffi í veitingasal á neðri hæðinni um og tekur þátt í bingó.

Karl Jóhannsson stýrir bingóinu – það eru ávallt flottir vinningar í boði og almennt vel mætt á þennan mánaðarlega viðburð eldri kylfinga.

Dagská bingónefndar lítur svona út fram að jólum:

  • 6. október
  • 27. október
  • 17. nóvember
  • 1, desember
  • 19. desember – Jólabingó

Við hvetjum alla þá kylfinga sem hafa náð 60 ára aldri til að mæta og taka þátt í bingóviðburðum á komandi hausti.

Golfklúbbur Reykjavíkur