Fjórir Íslendingar á Challenge Tour í Póllandi – Dagbjartur leikur sitt fyrsta mót á mótaröðinni

Dagbjartur Sigurbrandsson, Haraldur Franklín, Guðmundur Ágúst og Axel Bóasson eru meðal þátttakenda á Rosa Challenge Tour mótinu sem fram fer á Rosa golfvellinum í Konopiska, Póllandi. Fyrsti keppnisdagurinn er í dag, 29. ágúst og lýkur keppni á sunnudag, 1. september

Mótið er hluti af Challenge Tour atvinnumótaröðinni sem er í næst efsta styrkleikaflokki atvinnumótaraða í Evrópu í karlaflokki.

Dagbjartur vann sér inn keppnisrétt á þessu móti með frábærum árangri á Nordic Tour móti sem fram fór í Póllandi fyrr á þessu ári og leikur því á sínu fyrsta móti á Challenge Tour um helgina. Þeir Haraldur Franklín, Guðmundur Ágúst og Axel eru allir með keppnisrétt á mótaröðinni á þessu tímabili. Haraldur Franklín er að leika sitt fimmtánda mót á þessu tímabili. Guðmundur Ágúst hefur það tólfta og Axel sitt ellefta.

Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit:

Smelltu hér fyrir stigalistann í heild sinni:

Í lok tímabilsins komast 45 efstu á lokamótið þar sem að keppt er um 20 sæti á DP World Tour, sem er í efsta styrkleikaflokki atvinnumótaraða í Evrópu í karlaflokki.

Alls eru 29 mót á Challenge Tour á þessu tímabili og er mót helgarinnar það tuttugasta á tímabilinu.

Gangi ykkur vel strákar!