Customize Consent Preferences

Þessi vefur nýtir sér vafrakökur (e. web cookies) til að bæta virkni hans og hjálpa stjórnendum vefsins að greina notkun hans.

Það er stefna Golfklúbbur Reykjavíkur að nota vafrakökur með ábyrgum hætti.

Allar persónuupplýsingar sem kunna að að verða til við notkun á kökum verða meðhöndlaðar og unnið með þær í samræmi við persónuverndarlög.... 

Always Active

Necessary cookies are required to enable the basic features of this site, such as providing secure log-in or adjusting your consent preferences. These cookies do not store any personally identifiable data.

No cookies to display.

Functional cookies help perform certain functionalities like sharing the content of the website on social media platforms, collecting feedback, and other third-party features.

No cookies to display.

Analytical cookies are used to understand how visitors interact with the website. These cookies help provide information on metrics such as the number of visitors, bounce rate, traffic source, etc.

No cookies to display.

Performance cookies are used to understand and analyze the key performance indexes of the website which helps in delivering a better user experience for the visitors.

No cookies to display.

Advertisement cookies are used to provide visitors with customized advertisements based on the pages you visited previously and to analyze the effectiveness of the ad campaigns.

No cookies to display.

Forskot afrekssjóður úthlutar styrkjum til fimm atvinnukylfinga

Forskot, afrekssjóður, mun styðja við bakið á alls fimm atvinnukylfingum á árinu 2024.

Forskot hefur frá árinu 2012 úthlutað styrkjum til afrekskylfinga og er úthlutunin í ár sú 13. í röðinni.
Að sjóðnum standa: Eimskip, Íslandsbanki, Icelandair, Vörður tryggingar, Bláa Lónið og Golfsamband Íslands.

Frá stofnun sjóðsins hefur markmiðið að gera styrkþegum auðveldara fyrir að æfa og keppa við bestu skilyrði í samræmi við það sem gerist á alþjóðlegum vettvangi í golfíþróttinni.

Axel Bóasson, Bjarki Pétursson, Guðrún Brá Björgvinsdóttir, Haraldur Franklín Magnús og Ragnhildur Kristinsdóttir fá úthlutað úr sjóðnum í ár.

Axel Bóasson er fæddur árið 1990 og hann hefur þrívegis fagnað Íslandsmeistaratitlinum í golfi.  Axel gerðist atvinnukylfingur árið 2013. Axel er með keppnisrétt á Challenge Tour mótaröðinni sem er í næst efsta styrkleikaflokki atvinnumótaraða í Evrópu í karlaflokki.

Bjarki Pétursson er fæddur árið 1994 og hann varð Íslandsmeistari árið 2020. Bjarki hefur verið atvinnukylfingur árið 2019 en hann með keppnisrétt á Nordic Golf League.

Guðrún Brá Björgvinsdóttir er fædd árið 1994 og hún gerðist atvinnukylfingur árið 2018. Guðrún Brá hefur þrívegis fagnað Íslandsmeistaratitlinum í golfi. Guðrún Brá tryggði sér keppnisrétt á LET Evrópumótaröðinni árið 2020 eftir að hafa leikið á LET Access mótaröðinni frá árinu 2018. Guðrún Brá er með keppnisrétt á LET Access mótaröðinni á þessu tímabili.

Haraldur Franklín Magnús er fæddur árið 1991 en hann gerðist atvinnukylfingur árið 2017. Hann er með keppnisrétt á Challenge Tour, Áskorendamótaröðinni, sem er næst efsti styrkleikaflokkur hjá atvinnukylfingum í karlaflokki í Evrópu. Haraldur Franklín, varð Íslandsmeistari í golfi árið 2012, og mun hann leika á fjölmörgum mótum á Challenge Tour á keppnistímabilinu.

Ragnhildur Kristinsdóttir er fædd árið 1997 og er ríkjandi Íslandsmeistari í golfi. Hún er á sínu öðru ári sem atvinnukylfingur. Ragnhildur fór í úrtökumótið fyrir LET Evrópumótaröðina í annað sinn í desember á síðasta ári. Hún er með keppnisrétt á LET Access atvinnumótaröðinni á þessu tímabili, sem er næst sterkasta atvinnumótaröð Evrópu hjá atvinnukonum í golfi.

Markmiðið með stofnun Forskots afrekssjóðs árið 2012 var að búa til reynslu og þekkingarbrunn sem skili sér til kylfinga framtíðarinnar og ungir kylfingar geti litið til í sínum framtíðaráætlunum.

Ríkar kröfur eru gerðar til þessara íþróttamanna um ráðstöfun styrkjanna. Ber þeim að leggja fram æfinga- og keppnisáætlanir auk fjárhagsáætlunar fyrir verkefni sín auk þess sem gerðir eru sérstakir samningar við hvern kylfing um að þeir virði reglur Íþrótta- og Ólympíuhreyfingarinnar.

Þeir kylfingar sem fá úthlutað úr Forskoti afrekssjóði eru sterkar fyrirmyndir. Það að eiga afreksmenn í íþróttum er stór og mikilvægur þáttur í því að fá börn og unglinga til að sinna íþróttum. Því er litið á sjóðinn sem mikilvægt skref til að efla íþróttir barna og unglinga og hvetja þau til dáða.

Einn fulltrúi frá þeim sem aðild eiga að Forskoti er í stjórn sjóðsins og auk þess hefur stjórn sér til ráðgjafar fagteymi sem gerir tillögur um úthlutanir úr sjóðnum.