Barna- og unglingastarf GR 2022 – opið fyrir skráningar í Sportabler

Opnað hefur verið fyrir skráningar í barna- og unglingastarf klúbbsins fyrir árið 2022. Gengið er frá skráningu og greiðslu í gegnum Sportabler og er hægt að nýta frístundastyrk sveitafélaganna til greiðslu. Slóð á skráningarsíðu er hér Golfklúbbur Reykjavíkur | Vefverslun (sportabler.com)

Hægt er að velja á milli mismunandi æfingaleiða og eru æfingagjöld 2022 þessi:

Heilsársæfingar      jan-des kr. 60.000
Vetraraðild 1 jan-maí kr. 30.000
Hálfsársæfingar jún-des kr. 35.000
Sumaræfingar jún-sept kr. 25.000
Vetraraðild 2 okt-des kr. 20.000

Hægt er að skoða hvað innifalið er í þeim æfingaleiðum sem í boði eru hér

Barna- og unglingastarf klúbbsins fer fram undir handleiðslu vel menntaðra PGA golfkennara sem leggja metnað sinn í að kynna allar hliðar golfíþróttarinnar fyrir ungmennum. Mikið er lagt upp úr því að auka færni og hjálpa þeim að mótast sem kylfingar og einstaklingar í heilbrigðu umhverfi.

Vel er tekið á móti nýjum iðkendum og er öllum velkomið að koma og prufa æfingar hjá okkur. Við vonumst til að sem flestir finni sig vel í starfinu og hafi gaman af því að stunda golfæfingar í góðra vina hópi.

Kveðja,
Þjálfarar